Velkomin á Jeppakort.is
Jeppakort.is er ókeypis kort af Íslandi, sérstaklega ætlað þeim sem ferðast um hálendið, óbyggðir og jökla landsins.
Markmiðið er að gera vandað og skýrt kort sem leggur áherslu á það sem skiptir máli við ferðalög utan alfaraleiða. Við viljum að kortið sé fallegt, auðlesið og gagnlegt, hvort sem ekið er eftir fjallvegum, um snjóþung svæði eða uppi á jöklum.
Jeppakortið verður aðgengilegt án endurgjalds, bæði í vafra og til notkunar í mismunandi kortaforritum, meðal annars án nettengingar. Kortið er unnið úr opinberum landupplýsingum, meðal annars frá Landmælingum Íslands, í samræmi við notkunarskilmála gagnanna.
Við viljum að Jeppakortið verði samstarfsverkefni þeirra sem ferðast um landið. Notendur geta bent á villur, komið með ábendingar og deilt staðbundinni þekkingu. Þannig getum við smám saman gert kortið betra fyrir okkur öll.
Jeppakortið er ekki hugsað sem staðgengill allra annarra korta eða sérhæfðra kortalausna, heldur sem ókeypis valkostur sem getur þróast og batnað með þátttöku samfélagsins.
Nýjasta útgáfa: 2026-10-25. Útgáfan sem þú ert með sést á hafinu suðaustur af landinu þegar kortið er dregið út; ef hún er eldri skaltu sækja skrána aftur.