Jeppakort.is

Jeppakortið í spjaldtölvum

Hægt er að nota Jeppakortið í forritum á Android og Apple iOS. Þau geta annað hvort sótt kortið á netinu eða vistað það í tækinu til að nota án nettengingar. Veldu forritið þitt hér fyrir neðan til að sjá leiðbeiningar um uppsetningu.

OruxMaps Android

Á netinu, án nettengingar og hæðargögn. Kortið á netinu bætist við með einum smelli. Skref fyrir skref →

AlpineQuest Android

Á netinu, án nettengingar og hæðargögn. Skref fyrir skref →

Gaia GPS iPhone, iPad, Android

Á netinu og svæði án nettengingar. Krefst Gaia Premium. Leiðbeiningar →

Önnur forrit Locus Map, OsmAnd, QGIS …

Kortaskráin og slóð kortaþjónustunnar. Leiðbeiningar →

Skrárnar og slóðin

Fyrir önnur forrit, t.d. Locus Map, OsmAnd, Guru Maps og QGIS. Forrit sem taka við „XYZ“- eða „TMS“-kortaþjónustu virka með slóðinni. Sum forrit nota örlítið annað snið á henni, til dæmis notar OsmAnd {0}, {1}, {2} fyrir zoom, x og y. Forrit sem styðja MBTiles geta notað kortaskrána. Ef forritið styður ekki WebP myndir getur þú notað svæðaskrárnar fyrir Gaia, sem eru JPEG.

Jeppakortið án nettengingar

Við mælum með því að nota Jeppakortið án nettengingar. Það er öruggast á afskekktum svæðum þar sem nettenging er ótrygg. Ef forritið þitt er ekki á listanum efst á síðunni getur þú sótt MBTiles-skrárnar hér fyrir neðan.

Stærri útgáfan er um 12 GB. Tækið þarf að hafa nóg pláss og styðja skrár stærri en 4 GB. Ef það (eða forritið) gerir það ekki er minni útgáfan um 4 GB og nær einu zoom-þrepi skemur. Við mælum með stærri útgáfunni í forriti sem styður hana, eins og OruxMaps eða AlpineQuest.

Stærri útgáfajeppakort-2026-10-25.mbtiles, 11.3 GB, zoom 5–16Minni útgáfajeppakort-2026-10-25-lite.mbtiles, 3.9 GB, zoom 5–15

Nýjasta útgáfa: 2026-10-25. Útgáfan sem þú ert með sést á hafinu suðaustur af landinu þegar kortið er dregið út; ef hún er eldri skaltu sækja skrána aftur.

Jeppakortið með nettengingu

Flest forrit styðja að bæta við online korti. Þá eru reitir kortsins sóttir jafnóðum og kortið er skoðað, og hægt að þysja mikið inn án þess að sækja fyrirfram mikið af gögnum. Þessi leið hentar vel þeim sem eru yfirleitt með nettengingu þar sem þau ferðast, eða láta forritið vista svæði fyrir ferðina.

https://xyz.jeppakort.is/jeppakort/{z}/{x}/{y}.jpg
Web Mercator, 256 px JPEG-reitir, zoom 5–16.

Hæðargögn

Með hæðargögnunum sýna OruxMaps og AlpineQuest hæð hvers staðar, hæðarmun að áfangastað og hæðarprófíl ferla, líka án nettengingar. Þau eru unnin úr ÍslandsDEM Landmælinga Íslands, í .hgt-skrám með um 30 m upplausn.

Sækja hæðargögninjeppakort-dem.zip, 145 MB

Avenza Maps styðjum við ekki í bili. Avenza tekur bara við litlum svæðum í hverju korti, svo mörg kort þyrfti fyrir landið og flakka á milli þeirra, og kortaverslun þess tekur ekki lengur við nýjum kortum.

Ef þú hefur ábendingar um þessar leiðbeiningar mátt þú endilega láta vita á bjorn@swift.is.

Kortið er eingöngu til leiðsagnar. Þótt vegur, vað eða jökull sé á kortinu þýðir það ekki að vegurinn sé opinn, vaðið fært eða jökullinn öruggur.