Spjaldtölvur › Gaia GPS
Jeppakortið í Gaia GPS
Í Gaia GPS getur þú notað Jeppakortið á netinu og sótt svæði til að nota án nettengingar, á iPhone, iPad og Android. Auka kort í Gaia GPS krefjast Gaia Premium áskriftar.
1 Kortið með nettengingu
-
Farðu á gaiagps.com, skráðu þig inn og veldu að bæta við custom map source.
-
Settu inn slóð kortaþjónustunnar:
https://xyz.jeppakort.is/jeppakort/{z}/{x}/{y}.jpgNefndu hana Jeppakort.is og stilltu zoom á 5 til 16.
-
Kortið birtist nú í Gaia GPS í öllum tækjunum þínum. Þar getur þú líka valið svæði og sótt þau til að nota án nettengingar.
2 Svæði án nettengingar
Gaia GPS tekur bara við JPEG-kortaskrám allt að 4 GB, og allt landið í fullri dýpt er um 20 GB. Þú velur því á milli tveggja leiða:
Allt landið, minni dýpt
Ein skrá með öllu landinu upp í zoom 14. Einfaldast, en þysjar ekki eins langt inn og kortið á netinu.
Allt landiðjeppakort-2026-10-25-iceland.mbtiles, 1.9 GB, zoom upp í 14
Einstök svæði, full dýpt
Hvert svæði í fullri dýpt, upp í zoom 16. Hver skrá nær líka yfir allt landið þegar kortið er dregið út. Sæktu þau sem þú þarft; aðliggjandi svæði skarast, svo ferð nálægt jaðri kemst fyrir í einni skrá.
- Austfirðir 3.1 GB
- Fjallabak 3.6 GB
- Austurhálendið 3.4 GB
- Norðurhálendið 3.4 GB
- Norðurland 3.2 GB
- Norðausturland 3.5 GB
- Suðurland 3.8 GB
- Suðvesturland 3.5 GB
- Vestfirðir og Snæfellsnes 3.1 GB
Ef þú hefur ábendingar um þessar leiðbeiningar mátt þú endilega láta vita á bjorn@swift.is.
Kortið er eingöngu til leiðsagnar. Þótt vegur, vað eða jökull sé á kortinu þýðir það ekki að vegurinn sé opinn, vaðið fært eða jökullinn öruggur.